já mamma mín hefur ekki verið dugleg að uppfæra bloggið mitt. En það er allt gott að frétta af okkur.
það er kominn vetur, snjóar í dag ! Ég ég er voða kátur með það, finnst virkilega gaman í snjónum og í dag eftir skóla fór ég út með þotuna mína.
Mamma sótti mig í skólann ídag, en ég var hjá pabba um helgina.
Það er gaman í skólanum. Mér finnst skemmtilegra í stærðfærði en að lesa og fékk heim með mér verkefnabók sem ég má vinna í eins og ég vil, rosalega skemmtileg, hún heitir Sproti 1.