woohoo í dag á ég afmæli ! og ég er búinn að fá nokkra afmælispakka, td kubba frá langafa og langömmu sem hægt er að kubba 3 mismunandi bíla úr sömu kubbunum. Mamma mín er búin að hjálpa mér að kubba fyrstu 2 og rífa þá í sundur og er að kubba 3 gerðina núna – rosalega gaman !
Kíktum til þeirra í Lynghrauninu, og ég fékk afmælispakka þar líka; Arsenal jólasveinahúfu! hún er alveg geggjuð !
Ég hlakka til jólanna líka, en í dag ætla ég að njóta afmælisins og fá gesti í smá kaffi
Kveðja úr sveitinni
Gabríel afmælis jólastrákur
Engin ummæli:
Skrifa ummæli