sunnudagur, janúar 23, 2005

Hæ hæ
Í dag fór ég í fyrsta skipti í sturtu! Pabbi fór með mig og mér þótti það rosalega notalegt. Volgt vatnið, og svo hlýtt og mjúkt handklæðið hjá mömmu á eftir. Og svo fylgdi góður peli í kjölfarið. Enda sofnaði ég vel og lengi á eftir. En ég hef verið svolítið pirraður í maganum undanfarið og verið að vakna oftar.
Ég er farinn að vaka lengur núna, finnst gaman að sitja í stólnum mínum (bílstólnum sem ég vil helst allaf vera í) og horfa í kringum mig. Það er margt svo spennandi að gerast og ég sit og brosi að því öllu saman.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já ég vil benda á gestabókina sem er komin inn hérna til hliðar, væri gaman að fá nokkrar kvittanir !!
kveðja
Gabríel A. Hjörleifsson