fimmtudagur, janúar 13, 2005

Hæ hæ !
Þórey ljósmóðir sem sinnir ungbarnaeftirlitinu hérna kom til okkar í dag. Ég var vigtaður og mældur í bak og fyrir, og hef ég þyngst um 240 gr á viku. Ég sem sagt mælist 3790 gr í dag. Og hún var afskaplega ánægð með okkur öll. Ég er mjög duglegur að borða (finnst gott að borða enda hef ég ekki langt að sækja það) og ég er búinn að vera mjög duglegur að sofa, finnst gott að sofa (hef sennilegast heldur ekki langt að sækja það). Ég er afskaplega rólegur og góður, en get látið heyra í mér ef mér finnst eitthvað ekki eins og það á að vera!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Velkominn í heiminn yndislegi Gabríel Alexander og kæru foreldrar innilega til hamingju með frumburðinn. Gott að heyra að vel gengur með allt hjá ykkur. Ég trúi að það séu stoltir foreldrar sem meðhöndla þennan flotta strák!

Ég held ömmu og afa upplýstum með myndum og fréttum af ykkur og þætti vænt um að fá að vera í sambandi.
Ætla að reyna að fá þau til að endurnýja tölvukostinn. Helst þarf að nettengja ömmu þína líka.
Bestu kveðjur til ykkar allra
Guddú frænka