hæ hæ hó hó !!! ég er orðinn hress og kátur. Er hjá pabba um helgina og eflaust í góðu yfirlæti!!
Mamma setti mig með læknisráði aftur í skólann á föstudag. Var hrikalega hress á fimmtudag og var úti um alla íbúð og búinn að leggja hana alveg undir mig. Rosalega gaman!!
Svo er planið að fara á 17. júní upp í sveit með mömmu og njóta hátíðarhaldanna þar, ekki eins mikið af fólki, þarf ekki að bíða í klukkutíma eftir að fá eina blöðru sem kostar svo þúsund kall. Og Þar verða andlitsmálun, pylsur og svali og fleira skemmtilegt. Auk þess sem ég get verið á hjólinu mínu. Verið ég sjálfur úti um allt!
Og útilega í vinnunni hennar mömmu næstu helgi- það verður sko fjör! Ég skemmti mér svo vel í fyrra í útilegu að það verður gaman að fara aftur !!! Mér fannst svo gaman að vakna og geta barið farið beint út að leika :o)
En þar til næst - eigið góða helgi
Ykkar Gabríel Alexander
Engin ummæli:
Skrifa ummæli